$50.00
13 hours ago
Undanfarin ár hefur mér auðnast að styrkja barn til skólagöngu í gegnum Young Living Foundation, sem rekur Young Living Academy í Chongón í Ekvador.
Nú er komið að stórum tímamótum!
Í febrúar næstkomandi mun Elkin, drengurinn sem ég hef styrkt, útskrifast úr skólanum, og mér hefur borist sérstakt boð um að vera viðstödd útskriftarhátíðina í skólanum og taka þátt í sjálfboðastarfi (Service Trip) á vegum Young Living Foundation.
Fyrir mér er þetta miklu meira en ferðalag. Þetta er tækifæri til að fagna þeim krafti sem felst í menntun, tengjast samfélaginu og leggja mitt af mörkum á innihaldsríkan hátt.
Þorgerður Eva Þórhallsdóttir mun koma með mér til Ekvador og deila þessari einstöku upplifun með mér.
Við Þorgerður Eva elskum báðar starfið okkar með Young Living og þá gleði sem felst í að hjálpa fólki að bæta líf sitt og líðan.
Það er okkur því sérstakt gleðiefni að fá tækifæri til að styðja við starf Young Living Foundation, kynnast því betur af eigin raun og taka þátt í því mikilvæga starfi sem mannúðarsamtökin vinna í Ekvador.
Markmið söfnunarinnar er 2.600 dollarar, sem samsvarar þátttökugjaldi okkar beggja í ferðinni (1.300 dollarar á mann).
Á næstu vikum ætlum við að standa fyrir ýmsum fjáröflunarviðburðum hér á Íslandi, meðal annars notalegum samverustundum með góðum mat úr Lífræna eldhúsinu, Raindrop-upplifunum og þátttöku á jólamörkuðum.
Ef þig langar að styðja þetta ferðalag geturðu lagt söfnuninni lið hér á síðunni eða tekið þátt í einhverjum af þeim viðburðum sem ég mun standa fyrir hjá mér og Þorgerði Evu.
Hvert framlag, stórt sem smátt, er okkur afar dýrmætt og við þökkum fyrir af öllu hjarta.
Saman getum við fagnað menntun, tækifærum og þeim fallegu mannlegu tengslum sem myndast þvert á lönd og landamæri.
Með hlýju og þakklæti,
Lilja Oddsdóttir
Íslandi